Fara í efni
Tveir hvítir vöruflutningabílar og dökkur sendibíll

Alhliða
flutningaþjónusta.

Áreiðanleg og sveigjanleg flutningaþjónusta fyrir einstaklinga og fyrirtæki

Fá tilboð

Þjónusta

Hvað getum við gert fyrir þig

Fyrirtækjaþjónusta

Við erum traustur samstarfsaðili fyrirtækja þegar kemur að flutningum og akstursþjónustu. Hvort sem þú þarft fasta útkeyrslu eða breytilega dag frá degi þá getum við orðið að liði

Búslóðaflutningar

Við flytjum stórar sem smáar búslóðir fyrir einstaklinga og fjölskyldur.

Fyrirtækjaflutningar

Við veitum faglega þjónustu með skipulögðum og markvissum hætti. Markmið okkar er ávallt að takmarka truflun á daglegum rekstri fyrirtækja.

Vörudreifing

Örugg og skilvirk afhending á vörum til fyrirtækja og einstaklinga.

Sendibílaþjónusta

Sendibíll fyrir vöruflutninga, sendingar og heimsendingar.

Píanóflutningar

Flutningur á þungum hlutum kallar á réttan búnað og reynslu. Við erum þaulreyndir í flutningum á píanóum, byssuskápum og amerískum ísskápum.

UM OKKUR

Um AT Flutninga

Nýtt vörumerki – áralöng reynsla.

AT Flutningar er fjölskyldufyrirtæki sem varð til í samstarfi okkar, Axels og Trausta, með það að markmiði að byggja upp trausta og öfluga flutningaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.

Þótt AT Flutningar sé nýtt vörumerki á markaðnum byggir starfsemin á áralangri reynslu í flutningaþjónustu. Aðilar að fyrirtækinu búa yfir fjölbreyttri reynslu af flutningum allt frá árinu 2004.

Saman leggjum við áherslu á fagmennsku, áreiðanleika og persónulega þjónustu. Markmið okkar er að gera flutninga viðskiptavina eins einfalda og þægilega og kostur er.

AT Flutningar – traust þjónusta og fagmennska í hverjum flutningi.

Fá tilboð

Lýstu flutningnum og við gerum þér tilboð.

Upplýsingarnar eru vistaðar hjá AT FLUTNINGUM og notaðar til að vinna úr fyrirspurn þinni. Beiðni er ekki staðfest bókun.